Sorptunnuþrif, lítil fjölbýli, sérbýli

Þrif sorptunnur
Þrif sorpklefi
Þrif sorprenna
Þrif lúgur

Sorptunnu og sorpgeymsluþrif fyrir minni fjölbýli og sérbýli. sorptunnutrif.is

Sorpgeymsluþjónusta
háþrýstiþvottur og sótthreinsun

Þrífum og sótthreinsun sorpílát í sérbýli og minni fjölbýlishúsum.
Mikilvægt er að tryggja hreinlæti sorpíláta, en ýmsar bakteríur þrífast þar sem nauðsynlegt er að sótthreinsa reglulega. Við erum eina fyrirtækið í sorptunnuþrifum sem notar sorptunnuþvottabíl og þrífur sorpílát með allt að 70°heitu vatni og við kappkostum að nota vistvæn efni við þjónustu okkar.

Tímabil

Þrifin fara að jafnaði fram á 6 mánaða fresti en það fer eftir hverfum hvenær þrifin fara fram. 

Verðskrá miðast við að ná saman mörgum stöðum í hverju hverfi og geta húseigendur náð fram hagstæðara verði séu heilu raðhúsin eða götur að panta þrif á sama tíma ef um einn greiðanda er að ræða.
Þegar þrif eru bókuð getur tekið 2-4 vikur fyrir okkur að koma á staðinn, vonandi sem fyrst, en nýtum þá ferð sorptunnuþvottabílsins í önnur verkefni í hverfinu. Mjög dýrt að senda svona stórt tæki í 1-2 tunnur og því ekki alltaf hægt að bregðast við með fárra daga fyrirvara.

Vinnulýsing

Sorpílátin eru þrifin í Tunnuþvottabíl og úrgangur úr þeim fer inní bílinn og er losaður í Sorpu. Sorpílátin fara inn í bifreiðina að aftan og eru háþrýstismúlaðar bæði að utan og að innan á allt að 70°hita og svo sótthreinsaðar á eftir. Til að tryggja að vatn leki úr tunnum eru þær skyldar eftir á hvolfi. Ekki þarf að hafa áhyggjur af því rusli sem er í tunnunum, því við komum stuttu eftir losun á ruslinu og ef eitthvað rusl er í tunnum setjum við það jafnan í sorppoka.

Að þessu loknu er tilkynning um komu okkar sett í lúgu/póstkassa en greiðsluseðill er sendur í heimabanka að verki loknu og pdf skjal reiknings er sent í tölvupósti.

Bjóðum einnig upp á þrif á sorpklefum og sorprennum við sérbýli og lítið fjölbýli, en það er pantað sérstaklega, því önnur bifreið sér um þau þrif.  Þá eru veggir og gólf í sorpklefa sápaðir og svo þrifnir með háþrýstibyssu. Ef sorprenna er þrifin þá er hún sápuð og háþrýstismúluð frá sorplúgum. Klefinn og renna er svo sótthreinsuð.

Endurvinnslutunnur

Mikil hreyfing hefur verið á þessum málum og eru nú flest heimili komin með a.m.k pappírstunnu og sumir með tunnur sem taka við fleiri flokkum úrgangs s.s. plasti. Þessi ílát þarf að þrífa eins og almennu sorpílátin en misjafnt hversu skítug þau verða.

Við þrífum oftast endurvinnsluílátin á sama tíma og almennu sorpílátin, hvort sem þau eru full eða ekki.

Viðhald sorpíláta

Sveitarfélögin eiga eða leigja sorpílát fyrir okkur íbúana og bera oftast ábyrgð á ástandi þeirra fyrir utan að þrífa þau en það er skylda okkar borgaranna. Misjafnt er hve vel sorphirðuaðilar fylgjast með ástandi á sorpílátum.

Við fylgjumst með þessu og ef sorpílát er bilað tilkynnum við réttum aðilum um það svo bætt verði úr því.  Athugið í sumum sveitarfélögum t.d. Hafnarfirði er viðhald á sorpílátum á ábyrgð íbúa og þarf beiðni þar að koma frá íbúum sjálfum um biluð ílát.

Scroll to Top