Sorptunnuþrif, lítil fjölbýli, sérbýli

Þrif sorptunnur – Líka tvískipt ílát
Þrif sorpklefi
Þrif sorprenna
Þrif lúgur

Þvottakerra til þvotta á tvískiptum sorpílátum.

Sorpgeymsluþjónusta
háþrýstiþvottur og sótthreinsun

Þrífum og sótthreinsum sorpílát í sérbýli og minni fjölbýlishúsum.
Mikilvægt er að tryggja hreinlæti sorpíláta, en ýmsar bakteríur þrífast þar sem nauðsynlegt er að sótthreinsa reglulega.
Ef ekki er um tvískiptar sorptunnur að ræða eins og í flestum sérbýlum þá þrífum við sorpílátin í tunnuþvottabíl með 70°heitu vatni.
Ef um tvískipt sorpílát er að ræða þá þrífur tunnuþottabílinn þau ekki sjálfvirkt og notum þá þvottakerru sem henta betur í þau þrif.    
Við kappkostum að nota vistvæn efni við þjónustu okkar og notum sápu frá Jákó og sótthreinsi frá Tandur og Kemi.
Ef veðuraðstæður henta illa til þvotta með þvottakerrunni, t.d. mikill vindur eða frost þá sækjum við sorpílátin og þrífum þau með þvottakerrunni innanhúss og þá með 45°heitu vatni.

Tímabil

  • Þrifin fara að jafnaði fram á 4-6 mánaða fresti en það fer eftir hverfum hvenær þrifin fara fram. 
  • Þegar þrif eru bókuð getur tekið 2-4 vikur fyrir okkur að koma á staðinn.

Vinnulýsing

Ef venjulegt sorpílát (ekki tvískipt) þá eru þau jafnan þrifin í tunnuþvottabíl.  Sorpílátin fara inn í bifreiðina að aftan og eru háþrýstismúlaðar bæði að utan og innan á allt að 70° hita og sótthreinsaðar. 

Ef um tvískipt sorpílát er að ræða þá eru þau þvegin í þvottakerrunni.

Til að tryggja að vatn leki úr ílátunum eru þau jafnan skilin eftir á hvolfi ef aðstæður leyfa.
Ekki þarf að hafa áhyggjur af því rusli sem er í ílátunum, því við komum stuttu eftir sorplosun og ef rusl er í ílátunum setjum við það í sorppoka.  Stundum þarf að setja lífræna úrganginn í poka með almenna sorpinu svo sóðaskapur hljótist ekki af.

Að þessu loknu er tilkynning um komu okkar sett í lúgu/póstkassa og greiðsluseðill sendur í heimabanka.  Hægt er að fá pdf skjal reiknings sent í tölvupósti en kemur annars rafrænt í heimabanka.

Við bjóðum einnig upp á þrif á sorpklefum og sorprennum við sérbýli og lítið fjölbýli ef pantað sérstaklega.  Þá eru veggir og gólf í sorpklefa sápaðir og háþrýstiþrifnir.  Ef bókuð eru sorprennuþrif þá er hún sápuð og háþrýstismúluð í fyrstu þrifum en eftir það sótthreinsuð.  Lúgur eru þá þrifnar í hvert skipti.  Ef þörf er á háþrýstiþrifum þá skal hafa samband sérstaklega.

Endurvinnsluílát

Öll heimili eru nú komin með 4 flokka sorpíláta.  Almennt þarf að þrífa almennu- og lífrænu sorpílátin oftar en endurvinnsluílátin.  Það er hægt að panta þrif á þeim sjaldnar.

Endurvinnsluílátin eru oft þrifin á sama tíma og almennu sorpílátin þó losunardagar séu ekki þeir sömu.  Plast/pappír er sett í stóran strigapoka á meðan ílátin eru smúluð, sótthreinsuð og þurrkuð og innihaldið er aftur sett í ílátið.  Komum þó stundum sér ferð í endurvinnsluílátin.

Meira um tvískiptu ílátin og þvottakerruna hér.  

Þrif með þvottakerru 

Scroll to Top